Fara á efnissvæði
03. september 2022

Fyrsta Forsetahlaup UMFÍ sló í gegn

Nágrannarnir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Ólafur Oddsson og hlaupafélagar þeirra komu saman síðastir í mark í Forsetahlaupi UMFÍ á Álftanesi. Þetta var fyrsta skiptið sem hlaupið er haldið og fór það fram í rjómablíðu í dag.

Rúmlega 200 þátttakendur voru skráðir í Forsetahlaupið, sem samanstóð af tveimur hlaupum. Nokkrir hlupu í báðum hlaupum. Annars vegar var í boði að hlaupa eina mílu eða rétt rúma 1,6 kílómetra, og hins vegar 5 kílómetra. Fyrra hlaupið var í nágrenni íþróttamiðstöðvarinnar á Álftanesi en hitt var öllu stærri hringur sem náði að hlaðinu á Bessastöðum þar sem hlaupararnir sneru við til baka.

Guðni tók þátt í báðum hlaupunum og afhenti verðlaun í fjórum flokkum, karla- og kvennaflokki og stúlkna og ungmennaflokki þátttakenda undir 16 ára aldri.

Að hlaupum loknum var þátttakendum og öllum gestum viðburðarins boðið upp á pylsur og með því til að kæla sig niður eftir hlaupin í sólinni.

Forsetahlaup UMFÍ er síðasti viðburðurinn í Íþróttaveislu UMFÍ og UMSK sem haldin var í sumar. Hinir viðburðirnir eru Drulluhlaup Krónunnar og Hundahlaup UMFÍ og Non-stop dogwear sem fóru fram í ágúst og heppnuðust afar vel.

Hér má sjá nokkrar myndir úr hlaupinu. Allar myndir frá viðburðinum má sjá á Facebook-síðu UMFÍ og á myndasíðu UMFÍ á Flickr.