Fara á efnissvæði
14. júní 2022

Garðar Jónsson: Gamlir mótherjar mætast á Landsmóti UMFÍ 50+

„Þarna fær maður tækifæri til að rifja upp mjög gamla takta og spila við gamla keppinauta sem maður hefur kannski ekki séð í mörg ár. Keppnisandinn er enn til staðar og menn stífna upp í vöðvum og fá tak í nára, sem er mjög vinsælt á Landsmótinu 50+. Ég fékk einmitt tak aftan í læri á síðasta móti þannig að þetta kemur fyrir bestu menn,“ segir Garðar Jónsson en hann tekur þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Borgarnesi 24 til 26 júní.

Rætt er við Garðar um mótið á visir.is.

Lesa viðtalið við Garðar á visir.is.

Eins og alltaf skapast frábær stemming á vellinum á Landsmóti UMFÍ 50+ og er myndin af Garðari hér að ofan frá vel heppnuðum leik á síðasta móti. 

Í Borgarnesi ætlar Garðar að keppa fyrir UMSB í fótbolta og körfubolta. Hann hlakkar til mótsins.

 

Heimasíða Landsmóts UMFÍ 50+

Leiðbeiningar: Svona skráir þú þig á Landsmót UMFÍ 50+

 

Garðar heldur áfram:

„Ég hef tekið þátt í þremur Landsmótum UMFÍ 50+ og þetta er alltaf jafn gaman. Við Gunni bróðir stefnum á að spila saman í ár en það eru ca. 40 ár síðan við spiluðum saman með Skallagrími í fótbolta og körfubolta,“ segir Garðar en þeir bræður gerðu einmitt garðinn frægan með Skallagrími og náðu vel saman á fótboltavellinum svo eftir var tekið.

Garðar er næst markahæsti leikmaður Skallagríms frá upphafi í fótbolta auk þess sem hann hefur þjálfað félagið bæði í körfubolta og fótbolta. Hann lék fótbolta með meistaraflokki Skallagríms frá 1979 til 1984 fékk síðan tilboð um að þjálfa og spila úti á landi aðeins 22 ára með góðum árangri.

Garðar var einnig liðtækur í körfunni og rifjar upp þegar Skallagrímur spilaði gegn Ármanni í Borgarnesi. Leikurinn endaði 112-100 fyrir Ármann en þar skoraði Danny Shouse 100 stig í leiknum og þarna var ekki 3ja stiga reglan komin. 100 stig í leik er stigamet á Íslandi segir Garðar og á síður von á að það met verði slegið á Landsmótinu 50+ eða hvað?

„Varla, en vonandi fáum við klapp á bakið fyrir að gera góða hluti inn á vellinum,“ segir hann, það sé mikil tilhlökkun í Borgarnesi fyrir mótinu og allir tilbúnir að taka á móti þeim fjölda gesta sem kemur í Borgarnes.

„UMSB og Borgarbyggð hafa góða reynslu af að halda svona mót og íþróttaaðstaðan er með þeim bestu á landinu, fjöldi sjálfboðaliða kemur að svona móti og ég efast ekki um að þetta Landsmót UMFÍ 50+ verði UMSB og Borgarbyggð til sóma,“ segir Garðar.

Keppt er í fjölbreyttum greinum svo sem stígvélakasti, pönnukökubakstri, bridds, frjálsum íþróttum, boccia svo fátt eitt sé nefnt. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hér má fletta í gegnum svipmyndir síðasta móts.