Fara á efnissvæði
18. mars 2020

Góðar æfingar í samkomubanni

Þótt samkomubann hamli æfingum þá er mikilvægt að hugsa í lausnum.

Sambandsaðilar UMFÍ eru á meðal þeirra sem horfa alltaf á björtu hliðarnar og láta ekki samkomubann standa í vegi fyrir sér. Þar á meðal eru knattspyrnudeild Breiðabliks og Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB).

Knattspyrnudeild Breiðabliks  hefur ýtt úr vör skemmtilegum leik. Þar deilir leikmaður meistaraflokks æfingu á Facebook-síðu knattspyrnudeildarinnar og á Instagram-reikningi deildarinnar (breidablik_fotbolti) undir myllumerkinu #heimabliki.

Á hverjum miðvikudegi er dreginn út einn vinningshafi.

Hver þátttakandi getur sent inn mörg myndbönd af heimaæfingum og aukið líkurnar á því að vinna.

Einu skilyrðin sem sett eru fyrir þátttöku er að viðkomandi klæðist Blikafatnaði eða grænu og taki fram í hvaða flokki viðkomandi er.

Ef smellt er á myndina má sjá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, leikmanns meistaraflokks kvenna, gera sína æfingu heima hjá sér.

 

 

Engar æfingar eru hjá félögum innan UMSB nú um stundir. Þar á bæ er búið að taka upp nokkrar æfingar og fólk hvatt til að gera þær heima hjá sér.

Smelltu á myndina og sjáðu æfinguna.