Fara á efnissvæði
27. nóvember 2020

Grunnskólabörn á Þórshöfn gefa velgjörðarsjóði 100.000 krónur

„Börnin voru mjög ánægð og fannst þetta ægilegt sport að halda á ávísuninni. Þeim fannst hún svo stór,“ segir Hulda Kristín Baldursdóttir, íþróttakennari við Grunnskólann á Þórshöfn. Nemendurnir og skólastjórnendur fengu loks í dag afhenta ávísun upp á verðlaunafé sem þau báru úr býtum í Hreyfiviku UMFÍ og Kristals sem fram fór í lok maí.

UMFÍ og Kristall efndu til sérstakrar brenniboltaáskorunar í Hreyfivikunni. Hún fól í sér að kennarar grunnskóla landsins voru hvattir til að bjóða nemendum í brennibolta og auka framboð á skemmtilegri hreyfingu. Á vegum Grunnskólans á Þórshöfn voru skráðir 17 viðburði í Hreyfiviku UMFÍ í maí og voru þeir hvergi fleiri.

Skólinn fékk í verðlaun 100.000 króna ávísun frá Kristal og UMFÍ. Vinningnum fylgdi að verðlaunin skyldi gefa góðgerðarfélagi að eigin vali. Nemendur Grunnskólans á Þórshöfn í samráði við kennara ákváðu að gefa verðlaunin Velferðarsjóði Þingeyinga.

Jónas Egilsson, formaður Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ) og sveitarstjóri Langanesbyggðar, afhenti verðlaunin og ávísunina fyrir hönd UMFÍ í dag. Viðstödd afhendinguna voru þau Hulda og skólastjórinn Hilma Steinarsdóttir. Nemendur skólans fengu svo að sjálfsögðu að leika sér með ávísunina.

Fleiri fá glaðning

Tveir aðrir skóla voru dregnir út og áttu þess kost að vinna 50.000 krónur til að gefa góðgerðarfélagi. Dregnir voru út Fellaskóli í Reykjavík og Grundaskóli á Akranesi voru dregnir sérstaklega út í brenniboltaáskoruninni. Hvor skóli hlýtur 50.000 króna ávísun Hreyfiviku UMFÍ og Kristals sem þeir ánafna góðgerðarfélagi.

Það sama gildir um skólana tvo og Grunnskóla Þórshafnar en COVID-faraldurinn hefur hamlað því að verðlaunin hafi verið afhent. Það verður gert á næstu dögum.

 

Hvað er Hreyfivika UMFÍ?

Hreyfivika UMFÍ er hluti af samevrópsku lýðheilsuherferðinni Now We Move. UMFÍ hefur tekið þátt í verkefninu frá árinu 2012. Markmið verkefnisins er að að fjölga þeim sem hreyfa sig reglulega, kynna fyrir fólki kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu á hverjum degi.

UMFÍ hvetur alla til að finna sína uppáhalds hreyfingu og stunda hana reglulega eða að minnsta kosti í 30 mínútur daglega.