Fara á efnissvæði
19. júní 2020

Guðrún Helga er nýr formaður USVH

„Við tökum öll að okkur ýmislegt í sveitinni og leggjumst saman á eitt. Húnaþing er lítið en öflugt samfélag þar sem allir þekkja alla og vita hvernig á að nýta styrkleika fólks. Ég var opin fyrir því að koma í stjórnina, finnst gaman að vera í forystu og er að safna í reynslubankann,“ segir Guðrún Helga Magnúsdóttir. Á ársþingi Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga (USVH) tók hún við sem formaður af Reimari Marteinssyni, sem setið hefur í formannsstólnum síðastliðin sex ár.  

Guðrún Helga er snögg að benda á að hún er aðflutt fyrir 10 árum. Þó eigi hún rætur að rekja til Miðfjarðar, þaðan sé faðir hennar, séra Magnús Magnússon og í sveitinni hafi hún haft annan fótinn í æsku.

Guðrún Helga er jógakennari og zumbakennari og er nýútskrifaður nuddari, með bakgrunn í körfubolta, fótbolta og spretthlaupum og viðurkennir að hún sé ágætlega aktív.

 

Fólk ánægt með nýjan formann

Sambandssvæði USVH er Húnaþing vestra, Miðfjörður og þar á meðal Hvammstangi. Innan USVH eru fimm aðildarfélög. Guðrún Helga situr í stjórn Ungmennafélagsins Grettis í Miðfirði ásamt tveimur öðrum konum og er hún gjaldkeri félagsins. Ungmennafélagið Grettir sér meðal annars um réttaballið í sveitinni og jólabingó og félagsvist á milli jóla og nýárs. Athygli vekur jafnframt að Guðrún Helga er ný í stjórn USVH.

Guðrún segir aðdragandann að stjórnarsetunni hafa verið stuttan.

 

 

„Kona sem vinnur með mér bað mig um að koma í stjórnina. Ég var opin fyrir því af því að hér gera allir allt,“ segir hún en bætir við að hún hafi ekki komist á þingið og ekki vitað niðurstöðuna strax.

„Daginn eftir var fólk sem ég hitti alltaf að óska mér til hamingju. Það kom mér á óvart því ég vissi ekki að fólk væri svona ánægt með að ég væri orðin formaður,“ segir hún.

 

Hvetja til þátttöku á Unglingalandsmót

Guðrún Helga er afar spennt fyrir komandi tíð í kjölfar ársþings USVH.

„Húnaþing er afar liðlegt samfélag og allir til í að leggja af mörkum,“ segir hún og fer á sinn fyrsta stjórnarfund hjá USVH í næstu viku. „Þar leggjum við línurnar fyrir sumarið. Ég veit að við munum sjá um þríþraut á bæjarhátíðinni Eldur í Húnaþingi í júlí og svo ætlum við að hvetja börn og foreldra þeirra til að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina,“ segir Guðrún Helga.

Þess má geta að Guðrún Helga er á meðal yngstu formanna sambandsaðila UMFÍ. Hún er 23 ára, prestsdóttir frá Hvammstanga. Einn þeirra yngstu var án nokkurs vafa Helgi Gunnarsson, fyrrverandi fjármálastjóri UMFÍ, en hann tók við formennsku í Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) 19 ára gamall árið 1972.