Fara á efnissvæði
09. apríl 2025

Gunnar sæmdur Gullmerki UMFÍ

Gunnar Kristjánsson var sæmdur Gullmerki UMFÍ á 84. héraðsþingi Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu sem fram fór á Grundarfirði á dögunum. Á sama tíma fengu þau Kristján Ríkharðsson og Sigríður Guðbjörg Arnardóttir starfsmerki UMFÍ. Guðmundur G. Sigurbergsson var fulltrúi UMFÍ á þinginu, flutti kveðju og ávarp og afhenti heiðranir félagsins.

Töluvert var um heiðranir á þinginu enda hefur fólk gefið mikið af sér í starfi sambandsins um árabil. Þar á meðal voru þeir Garðar Svansson, Gunnar Kristjánsson og Hallur Pálsson sæmdir Gullmerki HSH. Hann hefur setið í stjórn HSH frá árinu 1995 eða í 30 ár en gaf ekki kost á sér áfram.

Þá var Tryggvi Gunnarsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ og þeir Jón Pétur Pétursson og Ólafur Tryggvason sæmdir Silfurmerki ÍSÍ.

Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, formaður HSH, setti þingið en þau Gunnar Kristjánsson og Sigríður Guðbjörg Arnardóttir voru þingforsetar í ár. Þá voru þær María Alma Valdimarsdóttir og Berglind Long ritarar þingsins.
Gestir ávörpuðu þingið en þau Álfheiður Sverrisdóttir og Heiðar Mar Björnsson, svæðisfulltrúar á Vesturlandi, héldu erindi og sögðu frá því sem þau hafa verið að vinna að. Þá hélt Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ, erindi og veitti eftirfarandi heiðursviðurkenningar.

Sjö tillögur lágu til samþykktar fyrir þinginu og voru flestar þeirra samþykktar samhljóða og aðrar samþykktar með breytingartillögu. Lítils háttar breytingar voru gerðar á lögum HSH eftir ábendingar frá ÍSÍ eftir síðasta þing.

 

Fjölmargar heiðranir

Gunnar Kristjánsson
Gunnar Kristjánsson var formaður HSH 1976 – 1977 og ritstjóri Skinfaxa, tímarits UMFÍ árin 1977 – 1979. Þá var hann einnig ritstjóri 75 ára sögu UMFÍ, Ræktun lýðs og lands, sem var gefin út 1983. Gunnar var einn af stofnendum Golfklúbbsins Vestarr árið 1995 og var ritari fyrstu stjórnar félagsins. Gunnar var í mörg ár skoðunarmaður reikninga HSH og er ávallt tilbúinn að taka þátt í verkefnum ef til hans er leitað og hefur í gegnum tíðina sinnt störfum bæði fyrir Ungmennafélag Grundarfjarðar (UMFG) og HSH. Hann hefur sömuleiðis setið í stjórnum og gegnt trúnaðarstörfum fyrir bæði félögin. Gunnar hlaut starfsmerki UMFÍ árið 2008. Gunnar var þingforseti á þingi HSH.

Kristján Ríkharðsson
Kristján Ríkharðsson, eða Stjáni Tótu eins og hann er alltaf kallaður, og eins og nafnið bendir til, er kenndur við konuna sína, hana Þórunni, kölluð Tóta. Stjáni hefur verið viðloðinn Víking Ólafsvík eins lengi og elstu menn muna og verið sjálfboðaliði í meira en fjóra áratugi. Hann hefur unnið öll möguleg störf fyrir félagið, verið búningastjóri, liðsstjóri, séð um matinn eftir leiki ásamt Tótu sinni, hann startaði getraunastarfinu aftur sem var búið að liggja lengi í dvala, sinnti stjórnarstörfum og margt fleira. Hann gerir allt fyrir félagið og meðal þess er að hann hefur áritað leikskýrslur hjá félaginu.

Sigríður Guðbjörg Arnardóttir
Sirrý Arnardóttir lét af störfum sem formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar (UMFG) á aðalfundi félagsins í maí 2024 eftir átta ár. Hún hafði verið formaður félagsins frá árinu 2018 og tók þátt í uppbyggingu félagsins, m.a. stofnun rafíþróttadeildar ásamt mörgum öðrum mikilvægum verkefnum sem eru hluti af starfi félagsins í dag.

Garðar Svansson
Garðar Svansson hefur starfað fyrir HSH síðan hann tók fyrst sæti í stjórn sambandsins 2. maí árið 1995. Það eru komin 30 ár nú í næsta mánuði sem hann hefur starfað fyrir héraðssambandið. Frá því að Garðar hóf fyrst störf fyrir HSH hefur hann gengt öllum embættum í stjórn sambandsins en um tíma sinnti hann einnig framkvæmdastjórastöðunni. Garðar var í mótsstjórn Unglingalandsmóts UMFÍ 2002 sem haldið var í Stykkishólmi auk þess að vera í mótstjórn Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið var í Stykkishólmi árið 2023.

Garðar hefur starfað bæði fyrir aðildarfélög HSH og landssambönd íþróttahreyfingarinnar. Garðar var kjörinn í stjórn UMFÍ árið 2009 – 2011 og stjórn ÍSÍ árið 2011. Þar hefur Garðar setið í stjórn í 13 ár en mun ekki gefa kost á sér áfram þegar kosið verður á þingi ÍSÍ nú í maí. Hjá þessum mikilvægu landssamböndum í íþróttahreyfingunni hefur Garðar verið ötull talsmaður fyrir auknum samskiptum og samstarfi samtakanna í þágu íþrótta og félagsstarfs.

Garðar var formaður Ungmennafélags Grundarfjarðar frá árinu 1997 til 2001 en í dag starfar hann fyrir félagið á annan hátt, m.a. sem skoðunarmaður reikninga og dómari í blakinu í Grundarfirði. Garðar hefur að auki unnið ómetanlegt starf fyrir Golfklúbbinn Vestarr en hann var kjörinn formaður Golfklúbbsins árið 2013 og sinnir því starfi enn í dag.

Hallur Pálsson
Hallur Pálsson var formaður HSH á árunum 1991 – 1995. Hallur hefur sinnt trúnaðarstörfum fyrir Ungmennafélag Grundarfjarðar, Hestamannafélagið Snæfelling og HSH í tugi ára. Hann tók virkan þátt í uppbyggingu íþróttavallar í Grundarfirði þegar hann var byggður 1995 og lagði til bæði efni og vinnu við þá uppbyggingu. Að auki hefur Hallur verið virkur í starfi Snæfellings. Hann var formaður þess frá árunum 1999 til ársins 2003. Hann hefur tekið þátt í mótastarfi og gegnir í dag trúnaðarstörfum fyrir Snæfelling og er fulltrúi félagsins í Hrossvest.

Tryggvi Gunnarsson
Tryggvi Gunnarsson er einn af stofnfélögum í Hestamannafélaginu Snæfellingi og sat í stjórn Snæfellings um árabil og var formaður þess um tíma. Hann sat mörg LH-þing og var lykilmaður í uppbyggingu svæðisins á Kaldármelum og var formaður fjórðungsmótsnefndar bæði 1988 og 1992. Tryggvi var stjórnarmaður í Hrossaræktarsambandi Vesturlands í 8 ár, hann er heiðursfélagi í Hestamannafélaginu Snæfellingi og HrossVest. Duglegur og kraftmikill félagsmaður sem félagið á mikið að þakka.

Jón Pétur Pétursson
Jón Pétur var formaður Skotfélags Snæfellsness í 13 ár frá árunum 2011 til 2024 en Jón Pétur hafði það að markmiði að efla félagslífið og bæta aðstæður fyrir skotíþróttafólk á Snæfellsnesi. Hann leiddi félagið í átt að aukinni fagmennsku og bættri aðstöðu fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Jón Pétur lagði mikla vinnu í að byggja upp samstarf við aðra félaga og stofnanir innan sem utan skotíþróttahreyfingarinnar. Hann er fyrirmynd innan sem utan félagsins og mun áfram vera talinn ein af helstu stoðum Skotfélags Snæfellsness.

Ólafur Tryggvason
Ólafur hefur lagt félaginu og hestamennskunni mikið lið í félagsmálum og verið óeigingjarn í sitt starf fyrir hestamenn. Það er margt sem hann hefur komið að fyrir félagið. Hann var í stjórn í 12 ár núna síðast og var allan tímann gjaldkeri, var formaður reiðveganefndarinnar. Þá hafði hann áður verið í stjórn félagsins, var í framkvæmdanefnd Fjórðungsmótsins 2017, situr í stjórn Vesturlandsdeildarinnar. Sennilega er Ólafur búinn að vera svo lengi í Snæfelling að hann var varla með aldur til að muna hvenær hann var skráður þar sem faðir hans var mjög virkur félagsmaður hjá Snæfelling. Hvar sem hestamennskan er þá er Óli liðtækur hvort sem er í útreiðum, keppnum, hestaferðum, ræktun eða félagsmálum. Svona félagsmenn er gott að hafa með sér í hverjum þeim verkefnum sem til falla á hverjum tíma.

 

Myndir á þinginu sem sjá má hér tók Tómas Freyr Kristjánsson.