Fara á efnissvæði
24. nóvember 2020

Gunnar Þór er nýr formaður Ungmennasambands Skagafjarðar

„Maður er farinn að sakna svolítið fólksins,‟ segir Gunnar Þór Gestsson sem síðdegis í dag var kjörinn formaður Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS). Úr sæti formanns stígur Klara Helgadóttir, sem hefur setið í honum síðastliðin tvö ár. Formannsskiptin voru á ársþingi UMSS sem fram fór með rafrænum hætti á forritinu Microsoft Teams. Sara Gísladóttir var á sama tíma kjörin varaformaður UMSS og tekur hún við því af Gunnari Þór.

Dagskrá þingsins var að flestu leyti hefðbundin. Fyrir því lá aðeins ein tillaga,  fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.

Gunnar segir þingfulltrúa hafa verið um 35, sem sé ágætt við núverandi aðstæður. Á þingi UMSS í fyrra hafi þeir til samanburðar verið 40.

 

Undirbúið fyrir Unglingalandsmót UMFÍ

Gunnar segir mikið starf í gangi hjá UMSS og grasrótinni á sambandssvæðinu. Framundan í starfi UMSS sé undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki. Mótið átti að vera á þessu ári á Selfossi og á Sauðárkróki sumarið 2021. COVID-faraldurinn hafi hins vegar valdið því að öll mót UMFÍ hafi frestast um ár. Unglingalandsmót UMFÍ verði því á Selfoss um verslunarmannahelgina 2021 og á Sauðárkróki 2022.

Gunnar Þór  hefur verið viðloðandi íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna frá unga aldri. Hann æfði og lék m.a. fótbolta með Tindastóli upp alla yngri flokkana ásamt því að spila með meistaraflokki. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina, verið formaður U.M.F.Tindastóls og hefur verið varaformaður UMSS frá árinu 2018.

Gunnar Þór tók sæti í stjórn UMFÍ á sambandsþingi 2019.

Sara hefur verið formaður Ungmenna- og íþróttafélagsins Smára í Varmahlíð, sem er aðildarfélag UMSS, síðastliðin ár og setið í stjórn félagsins. Hún hefur m.a. haldið utan um sumarnámskeið Smárans sem hafa verið afar vel heppnuð og vel sótt.

Sara hefur einnig verið afar virk í félagsmálum fyrir Hestamannafélagið Skagfirðing ásamt fleiri félögum.

Þau Gunnar og Sara fengu bæði starfsmerki UMFÍ á þingi UMSS í fyrravor. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, afhenti þeim merkin og var myndin hér að ofan tekin af því tilefni.

 

UMSS er einn 28 sambandsaðila UMFÍ. Sambandsaðilarnir skiptast í 21 íþróttahérað og 7 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ með rúmlega 270 þúsund félagsmenn.