Fara á efnissvæði
21. mars 2019

Gunnar Þór og Sara sæmd starfsmerki UMFÍ

Gunnar Þór Gestsson og Sara Gísladóttir voru sæmd starfsmerki UMFÍ á ársþingi Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) sem haldið var á þriðjudag. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, afhenti starfsmerkin.

 

Sara Gísladóttir

Sara hefur verið í stjórn og síðustu ár formaður Ungmenna- og Íþróttafélagsins Smára í Varmahlíð. Sara hefur haldið vel utan um félagið og er dugleg að fá bæði yngri kynslóðina sem og foreldra til aðstoðar þegar þess þarf á að halda.  Síðustu sumur hefur hún ásamt öðrum haldið utan um sumarnámskeið Smárans sem hafa verið afar vel heppnuð og mikil aðsókn í.  Söru er umhugað um félagið og hefur verið óeigingjörn á tíma sinn í þágu þess.

Sara hefur einnig verið afar virk í félagsmálum fyrir Hestamannafélagið Skagfirðing.  Hún hefur í nokkur ár starfað í all nokkrum nefndum á vegum félagsins svo sem eins og keppnisnefnd þar sem hún hefur verið tengiliður Landssambands Hestamannafélaga í tölvumálum.  Sara hefur einnig starfað mikið bæði í Æskulýðsnefnd Skagfirðings og verið þar mjög drífandi. 

Sara er mjög drífandi og lætur verkin tala eins og sagt er.  Hún kemur hlutum í verk og er dugleg að fá fólk með sér í verkefnin.  Henni er mjög umhugað um framtíð beggja félaga og er afar mikilvægur félagsmaður  þeirra beggja.

 

Gunnar Þór

Gunnar Þór Gestsson hefur verið viðloðandi íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna frá unga aldri. Gunnar æfði og lék m.a. fótbolta með Tindastóli upp alla yngri flokkana ásamt því að spila með m.fl. félagsins. 

Gunnar Þór hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina. Hann hefur verið formaður U.M.F.Tindastóls og um þessar mundir situr hann bæði í stjórn UMSS og UMFÍ.

Gunnar Þór er öflugur liðsmaður og gott að leita til hans með hin ýmsu málefni. 

 

Fleiri myndir frá ársþinginu.