Fara á efnissvæði
27. janúar 2020

Hádegisfundur - aukin þátttaka barna og ungmenna af erlendum uppruna

 

Opinn hádegisfyrirlestur um hvernig hægt sé að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi fer fram miðvikudaginn 29. janúar í E sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal kl. 12:10 - 13:00. Fyrirlesari er Solveig Straume, prófessor við Háskólann í Molde í Noregi. Solveig hefur sérhæft sig í þátttöku barna af erlendum uppruna í íþróttastarfi. Hún mun gefa okkur innsýn í verkefni sem hún hefur komið að til að auka þátttöku barna af erlendum uppruna í Noregi.

Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og verður honum streymt.

Viðburðurinn er hluti af Reykjavíkurleikunum (RIG) og haldinn í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) og Íþrótta- og Olympíusamband Íslands (ÍSÍ).

UMFÍ minnir á efnið Vertu með sem hefur það markmið að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna. Í efninu er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem dæmi má nefna kosti þess að hreyfa sig, upplýsingar um æfingagjöld og frístundastyrki og mikilvægi þátttöku foreldra svo dæmi séu nefnd.

Efnið er aðgengilegt á íslensku, ensku, pólsku, tælensku, litháísku og filippseysku.

Efnið er samstarfsverkefni Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).

Smelltu hér til þess að kynna þér efnið. 

Sjá viðburðinn á facebook hér.