Hjólastólakörfubolti sló í gegn í Kringlunni

Mikill fjöldi fólks fylgdist með kynningu á hjólastólakörfubolta í Kringlunni á laugardag. Bæði var tilefnið að æfingar eru hafnar í hjólastólakörfubolta fyrir börn með fötlun hjá Fjölni og ÍR. Körfubolti er líka ein af þeim fimm greinum sem boðið verður upp á þegar Íslandsleikarnir fara fram á Selfossi í lok mars.
Landsliðsfólk í körfubolta keppti sín á milli í körfubolta í hjólastól en gestum og gangandi var líka boðið að taka þátt. Bræðurnir Matthías og Hálfdán í VÆB voru staddir í Kringlunni á sama tíma og skelltu sér í æsispennandi leik með nokkrum Kringlugestum.
Pálmar Ragnarsson, körfuboltaþjálfari í Val, stýrði kynningunni með glæsibrag og lýsti keppninni.
Hjólastólakynningin var á vegum verkefnisins Allir með, sem er samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra (ÍF), Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Markmið þess er að auka þátttöku barna með sérþarfir í skipulögðu íþróttastarfi.
Í mars verða haldnir Íslandsleikarnir á Selfossi og eru þeir ætlaðir fyrir þau sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi eða eru með stuðningsþarfir.
Kynningin vakti heilmikla athygli og var fjallað um hana í báðum fréttatímum sjónvarpsstöðvanna. Þar má sjá skemmtilegar myndir og viðtöl við Pálmar, Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóra Allir með, og fleiri.
Fyrirtæki og félagasamtök styrktu kaupin á hjólastólunum og sérfræðingar Marel smíðuðu festingar í kerru sem notuð er til að flytja stólana á milli staða.
Sjá umfjöllun fréttastofu Stöðvar 2
Íslandsleikarnir á Selfossi
Íslandsleikarnir verða haldnir á Selfossi dagana 29. -30. mars 2025. Leikarnir eru fyrir þá sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eða eru með stuðningsþarfir.
Á leikunum er keppt í fimm íþróttakreinum: Körfubolta, fótbolta, handbolta, fimleikum og í frjálsum íþróttum. Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum sem öllum er frjálst að mæta í.
Hægt er að skrá lið en einstaklingar geta líka skráð sig og verða þá settir í lið. Leikarnir eru fyrir iðkendur á öllum aldri.
Gisting í boði í skólastofum föstudags- og laugardagskvöld.
Þátttökugjald kr. 5.000 (mótsgjald, gisting, morgunmatur, hádegismatur, bolur, sundlaugarpartí og pítsuveisla).
Skráning opnar 1. mars og fer hún fram í gegnum Abler.
Meiri upplýsingar á vefsvæði Allir með
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á kynningunni á laugardag.




