Fara á efnissvæði
29. júlí 2022

Hreinn Óskarsson: Þátttakendur geta plantað á golfvellinum

Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina verður kolefnisjafnað. Jöfnunin felst í því að gróðursettar verða tvær trjáplöntur fyrir hvern þátttakenda á Unglingalandsmótinu. Gestum mótsins og þátttakendum verður boðið að koma á golfvellinum á Selfossi á milli klukkan 14:00 – 17:00 föstudaginn 29. júlí og gróðursett plönturnar.

Önnur plantan sem hver þátttakandi fær táknar viðkomandi en hin plantan fjölskyldu viðkomandi.

Hreinn á hugmyndina að kolefnisjöfnuninni en hann fékk hana einmitt á Unglingalandsmóti þegar hann var þar með fjölskyldu sinni.

„Þegar við fjölskyldan tókum þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði árið 2019 sá ég öll farartækin sem þar voru saman komin og fékk þá hugmynd að kanna áhugann á því að kolefnisjafna mótið með gróðursetningu trjáplantna. Við ræddum þetta hér á kaffistofunni hjá Skógræktinni og var hugmyndinni komið á framfæri við HSK. Vel var tekið í hana,“ segir Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri hjá Skógræktinni og umsjónarmaður með kolefnisjöfnun Unglingalandsmótsins. Hreinn er líka sérgreinarstjóri í götuhjólreiðum á mótinu.

Fengu styrk úr Umhverfissjóði UMFÍ

Plöntur verða til taks á mótssvæðinu og er stefnt að því að gróðursetja svæðin milli brauta á golfvellinum. Opið verður í gróðursetningu á ákveðnum tímum sem auglýstir verða síðar. Þátttakendur á mótinu geta því komið og gróðursett tré á meðan enn verða til plöntur.

Hreinn segir að með þessu framtaki séu slegnar nokkrar flugur í einu höggi. „Í fyrsta lagi kolefnisjöfnum við auðvitað mótið á næstu árum og áratugum eftir því sem trén vaxa, við búum til skjól fyrir golfara og vonum svo auðvitað að þetta verði framvegis gert í gróðurreitum víða um land sem tileinkaðir verði ákveðnum viðburðum UMFÍ,“ segir hann.

Framkvæmdanefnd Unglingalandsmótsins á Selfossi fékk styrk úr Umhverfissjóði UMFÍ árið 2020 til að kolefnisjafna mótið og verður það samstarfsverkefni Skógræktarinnar, HSK, Golfklúbbs Selfoss, mótshaldara Unglingalandsmótsins. Því var frestað eins og fleiri viðburðum árið 2020 og aftur í fyrra. En nú er loksins komið að því.

Allir þátttakendur og mótsgestir á Unglingalandsmótinu eru hvattir til að koma við á Svarfhólsvelli – sem er golfvöllurinn – og leggja lið við kolefnisjöfnunina og gróðursetninguna.

Gróðursetningin fer fram á milli klukkan 14-17.