Fara á efnissvæði
16. júní 2021

Hreinn Óskarsson: Unglingalandsmót UMFÍ verður kolefnisjafnað

Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina verður kolefnisjafnað. Jöfnunin felst í því að gróðursettar verða tvær trjáplöntur fyrir hvern þátttakenda á Unglingalandsmótinu. Gestum mótsins og þátttakendum verður boðið að koma á golfvellinum á Selfossi á meðan mótinu stendur þar sem þeir geta gróðursett plönturnar. Önnur plantan sem hver þátttakandi fær táknar viðkomandi en hin plantan fjölskyldu viðkomandi.

„Þegar við fjölskyldan tókum þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði árið 2019 sá ég öll farartækin sem þar voru saman komin og fékk þá hugmynd að kanna áhugann á því að kolefnisjafna mótið með gróðursetningu trjáplantna. Við ræddum þetta hér á kaffistofunni hjá Skógræktinni og var humyndinni komið á framfæri við HSK og vel var tekið í hana,“ segir Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri hjá Skógræktinni og umsjónarmaður með kolefnisjöfnun Unglingalandsmótsins. Hreinn er líka sérgreinarstjóri í götuhjólreiðum á mótinu.

 

Fengu styrk úr Umhverfissjóði UMFÍ

„Við verðum með plöntur til taks á mótssvæðinu og stefnum á að gróðursetja svæðin milli brauta á vellinum. Það verður opið í gróðursetningu á ákveðnum tímum sem auglýstir verða síðar og geta þátttakendur komið og gróðursett tré á meðan enn verða til plöntur,“ heldur Hreinn áfram.

„Við erum að slá nokkrar flugur í einu höggi á Selfossi. Í fyrsta lagi kolefnisjöfnum við auðvitað mótið á næstu árum og áratugum eftir því sem trén vaxa, búum til skjól fyrir golfara og vonum svo auðvitað að þetta verði framvegis gert í gróðurreitum víða um land sem tileinkaðir verði ákveðnum viðburðum UMFÍ,“ segir Hreinn.

Framkvæmdanefnd Unglingalandsmótsins á Selfossi fékk styrk úr Umhverfissjóði UMFÍ árið 2020 til að kolefnisjafna mótið og verður það samstarfsverkefni Skógræktarinnar, HSK, Golfklúbbs Selfoss, mótshaldara Unglingalandsmótsins. Því var frestað eins og fleiri viðburðum í fyrra. Nú er hins vegar komið allt á fullt við undirbúning mótsins um verslunarmannahelgina.

 

Fjölskyldustuð á Selfossi um verslunarmannahelgina

Allt er á fullu á Selfossi við undirbúning Unglingalandsmóts UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina. Búist er við á annað þúsund þátttakendum frá 11-19 ára ásamt fjölskyldum þeirra. Boðið verður upp á 24 stórskemmtilegar greinar, fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna, íþróttir á daginn og tónleika á kvöldin.

Verið er að útbúa risastórt tjaldsvæði við Suðurhóla í útjaðri Selfoss fyrir þátttakendur af öllu landinu. Svæðið er í göngufæri við mótssvæðið en strætó gengur líka á milli. Til að skapa frábæra stemningu og gæta öryggis þátttakenda og mótsgesta verður ákveðnum götum lokað í kringum nokkra viðburði á Selfossi um verslunarmannahelgina.

Unglingalandsmót UMFÍ 2021 fer fram 29. júlí - 1. ágúst á Selfossi. Skráningargjald er 7.900 krónur og hefst skráning 1. júlí.

Vefsíða mótsins er www.ulm.is

 

Myndir frá fyrri mótum