Fara á efnissvæði
03. janúar 2023

HSV leitar að nýjum yfirþjálfara Íþróttaskólans

Héraðssamband Vestfjarðar (HSV) auglýsir eftir starfi yfirþjálfara Íþróttaskólans. Skólinn er samstarfsverkefni HSV, allra 13 aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar.

Skólinn er fyrir öll börn í 1-4. bekk grunnskóla Ísafjarðarbæjar. Þar er lögð áhersla á grunnþjálfun og að börnin fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga.

Íþróttaskóli HSV var settur á fót haustið 2011 og er samstarfsverkefni HSV, aðildarfélaga HSV og Ísafjarðarbæjar. 

Yfirþjálfari íþróttaskóla HSV ber ábyrgð á daglegum rekstri hans ásamt samskiptum við Ísafjarðarbæ, aðildarfélög, foreldra og börn í skólanum.

 

Markmið Íþróttaskólans eru:


Helstu verkefni:

Hæfnikröfur:

Leitað er að einstaklingi með reynslu af þjálfum barna. Íþróttakennaramenntun, þjálfaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði. Yfirþjálfarinn þarf að vera fyrirmynd fyrir börn og fullorðna og koma vel fyrir. Jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð, góð samskiptafærni, sveigjanleiki og ríkur vilji til að vinna með börnum eru skilyrði. Áhugi á uppbyggingu íþróttastarfs í Ísafjarðarbæ er mikilvægur kostur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. Maí 2023 eða eftir nánara samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2023.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Stjórn HSV áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri HSV, Dagný Finnbjörnsdóttir í síma 865-7161, umsóknir skulu berast á netfangið hsv@hsv.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.