05. nóvember 2024
Hvað fær þitt barn háan frístundastyrk?
Sveitarfélög landsins styrkja íþróttastarf með ýmsu móti. Styrkurinn getur verið beinn styrkur til félaganna, leiga eða aðstöðustyrkir, ýmsir keppnisferða- og afreksstyrkir, styrkir til íþróttahéraða eða beint til forráðafólks.
Í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ, er fjallað um frístundastyrki frá ýmsum hliðum.
Hér má sjá dæmi um frístundastyrki á ýmsum stöðum um allt land.
Í blaðinu er jafnframt því velt upp hvað kostar að æfa íþróttir á nokkrum stöðum.
Langbest er auðvitað að skoða blaðið allt. Þú getur smellt á hlekkinn hér og á forsíðu blaðsins sem er neðst.