Fara á efnissvæði
21. september 2018

Hvar verða Unglingalandsmót UMFÍ 2021 og 2022?

Stjórn UMFÍ óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 24. Unglingalandsmóts UMFÍ 2021 og 25. Unglingalandsmóts UMFÍ 2022.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er um verslunarmannahelgina ár hvert. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í fyrsta skipti á Dalvík árið 1992 og hefur síðan þá vaxið og dafnað. Nú er svo komið að Unglingalandsmót UMFÍ er orðinn ómissandi viðburður hjá mörgum fjölskyldum um verslunarmannahelgi.

Umsóknum skal skilað til þjónustumiðstöðvar UMFÍ í Sigtúni 42, 105 Reykjavík,.

Frestur til að skila inn umsóknum er til 10. desember 2018.

Nánari upplýsingar má nálgast í þjónustumiðstöð UMFÍ á netfanginu umfi@umfi.is eða í síma 568-2929.

 

Reglugerð um ULM

Vinnureglur um val á mótsstað

 

Fleiri reglugerðir eru hér:

https://www.umfi.is/um-umfi/log-og-reglugerdir/

 

Svona var Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn 2018