Hvar verður Landsmót UMFÍ 50+ árið 2024?
Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið víða um land frá árinu 2011. Það verður í Borgarnesi dagana 24. – 26. júní og í Stykkishólmið árið 2023. En nú er komið að því að finna mótsstað árið 2024.
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og skemmtun þar sem fólk á besta aldri blómstrar í hreyfingu.
Mótið er opið öllum þátttakendum sem verða 50 ára á árinu og þá sem eru eldri. Stundum er líka opið í einstaka greinar fyrir yngri þátttakendur. Ekki er krafa um að þátttakendur eru skráðir í ungmenna- eða íþróttafélag.
Landsmót UMFÍ 50+ er frábært tækifæri fyrir mótshaldara til að vekja athygli á lýðheilsu og möguleikunum í sveitarfélagi sínu.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst næstkomandi.
Umsóknareyðublað og ítarlegar upplýsingar um kröfur fyrir mótshaldara má nálgast hér:
Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568 2929. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is.