Fara á efnissvæði
20. mars 2025

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutar í fyrsta skipti

Þrjátíu verkefni um allt land hljóta styrki upp á samtals 20,3 milljónir króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Þetta var í fyrsta skiptið sem veitt er úr sjóðnum, sem styrkir verkefni sem stuðla eiga að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna á Íslandi. Næsti umsóknarfrestur verður nú í vor en alls eru 70 milljónir króna í sjóðnum árlega. 

Áherslur sjóðsins eru á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölþættan menningar- og tungumálabakgrunn.  

Samtals bárust 49 umsóknir í sjóðinn upp á 86 milljónir króna.  

Verkefnin sem styrkt voru skiptast í fjóra áhersluflokka:  

A: Verkefni tengd börnum af erlendum uppruna: 8 umsóknir styrktar upp á 6,1 milljón króna. 

B: Verkefni tengd börnum með fötlun: 11 umsóknir styrktar upp á 7,8 milljónir króna.  

C: Verkefni tengd börnum af tekjulægri heimilum: 6 umsóknir styrktar upp á 3,7 milljónir króna. 

D: Verkefni þvert á ofangreinda flokka: 5 umsóknir styrktar upp á 2,7 milljónir króna.  

 

Skipting styrkja eftir landshlutum

Austurland: 1.500.000 krónur. 

Höfuðborgarsvæðið: 4.050.000 krónur.  

Norðurland vestra: 900.000 krónur. 

Norðurland eystra: 2.700.000 krónur.  

Suðurland: 2.250.000 krónur. 

Suðurnes: 3.500.000 króna. 

Vesturland: 4.250.000 krónur. 

Vestfirðir: 1.150.000 krónur. 

 

Nánar um Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar 

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn. 

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga. 

 

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar