Fara á efnissvæði
29. júlí 2024

Hvernig skrái ég í greinar?

Eftirvæntingin er heilmikil fyrir Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi. Skráning er opin í greinar til klukkan 16:00 í dag. En sum spyrja: Hvar skrái ég í greinar?

Hér er svar við því: 

Hlekkur til að skrá þátttakanda í greinar er undir liðnum skráningar í Abler-appinu (velur shop - skammstöfun þína efst í hægra horni og velur kvittun fyrir greiðslu þátttökugjalds á Unglingalandsmótinu).

Hlekkurinn er líka á kvittun sem barst í tölvupósti fyrir greiðslunni. 

Ef þú ert með fleiri spurningar þá höfum við tekið saman lista yfir nokkrar: Þar er svarað spurningum eins og hvort koma megi með hunda og ketti, hvað kosti á tjaldsvæðið, hvaða tónlistarfólk komi fram, hvar náð er í mótsgögn og margt fleira. 

Svör við algengum spurningum

Skrá þátttakanda á mótið

Kaupa aðgang að rafmagni á tjaldsvæði