Fara á efnissvæði
26. júlí 2022

Í hverju ætlar þú að keppa?

Spennan er orðin gríðarleg fyrir Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi um helgina og margir sem ætla að prófa fjölda af nýjum greinum. Enda um meira en 20 greinar að velja. Við höfum nú framlengt frest til að skrá sig í greina á mótinu og verður nú tækifæri til að gera það til hádegis á fimmtudag, 28. júlí. 

Hér er hægt að skrá þátttakendur á Unglingalandsmót UMFÍ og velja greinar á mótinu:  Skrá og velja greinar

Athugið að mikilvægt er að skrá fullt fæðingarár þátttakanda. 

Smelltu svo HÉR til þess að greiða þátttökugjald.

Athugið að sum íþróttahéruð/félög niðurgreiða þátttökugjald að hluta eða öllu leyti fyrir þátttakendur á sínu svæði.

Ertu ekki viss hvað íþróttahéraðið þitt heitir? 

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar. 

Aðeins kostar 8.500 krónur fyrir hvern þátttakanda á Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi. Fyrir þátttökugjaldið hefur viðkomandi kost á að skrá sig í margar greinar, aðgangur er að tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna og aðgangur að öllum viðburðum og tónleikum tengdum Unglingalandsmótinu. Öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára geta skráð sig til leiks. Ekki er skilyrði að vera skráð/ur í ungmenna- eða íþróttafélag.

Sjáumst hress á Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi!

 

Allar upplýsingar um mótið er á vefsíðunni: www.ulm.is

Við erum líka með viðburðasíðu á Facebook: Smelltu hér og misstu ekki af neinu á Facebook!