Fara á efnissvæði
19. maí 2020

ÍSÍ greiðir um 300 milljónir til íþrótta- og ungmennafélaga

ÍSÍ hefur greitt til íþrótta- og ungmennafélaga tæplega 300 milljónir króna af 450 milljóna króna framlagi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar vegna áhrifa af völdum Covid-19.

Úthlutunin byggir á tillögum vinnuhóps sem ÍSÍ skipaði þann 25. mars til að móta tillögur að skiptingu fjármunanna. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, vann með vinnuhópnum að skiptingunni.

Annars vegar er um að ræða almenna aðgerð og hins vegar sértæka aðgerð.

Fram kemur á vef ÍSÍ að með almennu aðgerðinni er yfir tvö hundruð íþróttafélögum landsins veittur fjárhagslegur stuðningur vegna þess vanda sem samkomubannið hefur valdið. Úthlutunin er ekki íþyngjandi varðandi upplýsingagjöf frá félögunum því notaðar eru upplýsingar sem þegar liggja fyrir. 

214 íþrótta- og ungmennafélög innan ÍSÍ fengu greiðslu með almennu aðgerðinni og er það í höndum aðalstjórna íþróttafélaga að ráðstafa framlaginu innan síns félags til þeirra deilda/verkefna sem hafa orðið fyrir tjóni vegna Covid-19. Framlagið er ekki styrkur heldur hugsað til að koma til móts við það tjón sem hefur orðið innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Smella hér til að skoða úthlutunina og sundurliðun á félög.

Þau viðmið sem unnið var eftir voru eftirfarandi: Reiknireglan er eftirfarandi: Framlagið skiptist milli íþróttafélaga sem starfrækja skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6 - 18 ára og höfðu að lágmarki skráðar 20 iðkanir, 6-18 ára, samkvæmt starfsskýrslum sem skilað var inn í félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ árið 2019.

Iðkendur í almenningsíþróttadeildum, samkvæmt skráningu ÍSÍ og UMFÍ, teljast ekki með vegna mismunandi túlkunar á skráningu iðkenda í þær deildir.
Við skiptingu milli félaga skal farið eftir fjölda iðkana. Þar skal miðað við fjölda iðkana 6-18 ára samkvæmt talnagrunni ÍSÍ og UMFÍ 2019, að undanskildum iðkendum í almenningsíþróttadeildum. Vægi iðkana í útreikningi er óháð búsetu þeirra.


Tillit er tekið til fjölgreinafélaga í reiknireglunni. Heildarframlag fjölgreinafélaga hækkar með veldisvexti fyrir hverja grein umfram eina og til og með fimmtu greininni.

Úthlutun til einstaks íþróttafélags getur ekki orðið hærri en 3% af veltu félagsins samkvæmt staðfestum reikningsskilum 2019 fyrir árið 2018 (fjárhagslegar tölur frá árinu 2018).

Samtals verður úthlutun á grundvelli ofangreinds 300 milljónir króna.

Sértækar aðgerðir

ÍSÍ mun kalla eftir umsóknum frá íþrótta- og ungmennafélögum, íþróttahéruðum og sérsamböndum ÍSÍ sem hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna Covid-19. Er þar meðal annars verið að horfa til sérstakra viðburða, móta og keppnishalds sem ekki gat orðið vegna Covid-19.

Verður það umsóknarferli kynnt nánar á næstunni og opnað fyrir umsóknir.