Fara á efnissvæði
31. júlí 2020

Ítarleg tilmæli yfirvalda um íþróttastarf fullorðinna

Hertar aðgerðir um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tóku gildi í dag, föstudaginn 31. júlí og gilda þau til 13. ágúst. Hertar aðgerðir miða að því að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

Tilmæli hafa jafnframt borist frá yfirvöldum um áhrif hertra aðgerða á íþróttastarf fullorðinna (þ.e. þeirra sem eru fæddir árið 2004 og eldri).

 

Tilmælin í hnotskurn:

  1. Að gert verði hlé á æfingum og keppni í íþróttum með snertingu til 13. ágúst næstkomandi eða þar til núgildandi auglýsing um takmarkanir á samkomum fellur úr gildi. 
  2. Að æfingar og keppni í íþróttum án snertingar haldi áfram eftir því sem hægt er, að virtum reglum um fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk skv. auglýsingu heilbrigðisráðherra.
  3. Að sameiginlegur búnaður verði sótthreinsaður milli notkunar/notenda.

 

Hertar aðgerðir sem tóku gildi í dag í hnotskurn:

Ákvæðið um fjöldatakmörkun tekur ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.

 

Ákvæði um nálægðartakmörkun (4. grein) tekur þó ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar. 

 

Sameiginlegur búnaður, s.s. í íþróttastarfi skal sótthreinsaður milli notenda.

Ítarlegri upplýsingar á www.covid.is.

Íþrótta- og ungmennafélög eru hvött til að fara að fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda og að viðhafa allar nauðsynlegar sóttvarnir til að sporna gegn útbreiðslu COVID-19.