Fara á efnissvæði
17. október 2021

Jóhann Steinar er nýr formaður UMFÍ

Jóhann Steinar Ingimundarson er nýr formaður UMFÍ. Hann tekur við af Hauki Valtýssyni, sem gegnt hefur embætti formanns frá árinu 2015 og ákvað að gefa ekki kost á sér að nýju. Jóhann var einn í framboði til formanns og því sjálfkjörinn. Kosning stjórnar UMFÍ fór fram á sambandsþingi UMFÍ, sem fram fór á Húsavík um helgina.  

Nokkrar breytingar urðu á stjórn UMFÍ. Málfríður Sigurhansdóttir kom ný inn frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR). Önnur kosin í stjórn UMFÍ voru þau Gunnar Þór Gestsson frá Ungmennasambandi Skagafjarðar (UMSS), Ragnheiður Högnadóttir frá Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), Guðmundur Sigurbergsson frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK), Gunnar Gunnarsson, Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands (UÍA), og Sigurður Óskar Jónsson frá Ungmennasambandinu Úlfljóti (USÚ).

Í varastjórn voru kosin þau Hallbera Eiríksdóttir frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar (UMSB), Lárus B. Lárusson frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK), Gissur Jónsson frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) og Guðmunda Ólafsdóttir frá Íþróttabandalagi Akraness (ÍA).

Þær Málfríður og Guðmunda koma báðar frá íþróttabandalögum sem fengu aðild að UMFÍ á sambandsþingi UMFÍ árið 2019.