Jóhanna Vigdís: Íþróttir eru sigurför fyrir sjálfsmyndina
„Íþróttaiðkun sonar okkar hefur ekki bara haft jákvæð áhrif á hann sjálfan heldur á alla fjölskylduna. Hann er líka hamingjusamari. Hann kynntist samherjum sínum í lífinu og þjálfurum sem eru orðnir þátttakendur í lífi hans og okkar,“ segir fjölmiðlakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir.
Sonur Jóhönnu er Hjalti Geir Guðmundsson, sundmaður úr íþróttafélaginu Öspinni og einn fjögurra íslensku sundkappa sem valdir voru til að keppa fyrir hönd Íslands á heimsleikum Special Olympics í Abú Dabí í mars á þessu ári.
Jóhanna Vigdís verður með erindi á ráðstefnu Sýnum karakter á laugardag. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter?
Jóhanna Vigdís mun þar fjalla um íþróttir og keppni sem sigurför fyrir sjálfsmyndina.
En hvað á hún við með því?
Hún segir þetta setningu sem Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi, hafi sagt um þá sigurför sem þátttakan er fyrir keppendur á heimsleikunum.
„Sjálfsmyndin skiptir okkur öll máli en fyrir fatlaða skiptir hún öllu máli. Það margt sagt óskaplega fallegt um þátttöku barna með sérþarfir í íþróttum en því miður er veruleikinn ekki alltaf sá sami. En virðum viljann og vonandi batnar þetta. Ég mæli með íþróttaiðkun allra en hún skiptir fatlaða gríðarlegu máli, hvort sem við erum að tala um afreksfólk eða almenna keppendur. Allir geta verið með – og eiga að vera með,“ segir hún.
Fjölbreytt ráðstefna um keppnisfyrirkomulag
Ráðstefna Sýnum karakter verður laugardaginn 5. október í Háskólanum í Reykjavík á milli klukkan 9:00 – 12:30. Miðaverð er 2.500 krónur. Mikilvægt er að tryggja sér sæti í tíma því uppselt hefur verið á viðburði Sýnum karakter í gegnum tíðina.
Dagskráin er gríðarlega fjölbreytt og margt áhugaverðra erinda fyrir alla sem hafa áhuga á íþróttum. Flutt verða erindi sem tengjast breyttu keppnisfyrirkomulagi og því hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.
Á meðal annarra sem flytja erindi á ráðstefnunni eru dr. Viðar Halldórsson, hugmyndasmiður Sýnum karakter, Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, Arnar Bill Gunnarsson, fræðslustjóri KSÍ, Sveinn Þorgeirsson, aðjúnkt á íþróttasviði HR, og Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB). Hann ætlar að ræða um það hvernig UMSB er að innleiða verkfærakistu í starfsemi UMSB.
Starfsfólk og sjálfboðaliðar innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar er hvatt til að mæta.
Hvað er Sýnum karakter?
Sýnum karakter er átaksverkefni ÍSÍ og UMFÍ um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni.
Skráning og greiðsla fer fram hér. https://umfi.felog.is/verslun