Fara á efnissvæði
05. mars 2018

Júgóslavneskur blakari er með blakbúðir á Húsavík


Júgóslavneski blakarinn Vladimir Vanja Grbic verður með blakbúðir á Húsavík helgina 23. – 25. mars. Blakbúðirnar eru samstarfsverkefni blakdeildar Völsungs (Blakdeild Völsungs), BLÍ - Blaksamband Íslands og Special Olympics á Íslandi (Íþróttasamband fatlaðra). Vladimir Grbic er „Global Ambassador volleyball" hjá Special Olympics.

Grbic var fyrirliði gullverðlaunahafa Júgóslava á Ólympíuleikunum i Sydney árið 2000 auk þess að hafa unnið til fjölda verðlauna á heims- og Evrópumótum í blaki. Hann var tekinn inn í frægðarhöll blaksins árið 2011.

Grbic heldur bæði fræðilegan fyrirlestur og verklega þjálfun þar sem lögð verður áhersla á tæknileg atriði í blaki, þjálfunaraðferðir og andlegu hliðina og hvernig þessir þættir móta og hvetja unga iðkendur til afreka.

Föstudagskvöldið 23. mars verður fræðilegur fyrirlestur fyrir þjálfara, íþróttakennara og áhugasama. Fyrirlesturinn á ekki síður við þá sem koma að öðrum íþróttagreinum.

Blakbúðirnar hefjast svo á laugardaginn 24. mars. Þann dag verður áhersla á efni tengt fyrirlestrinum kvöldið áður og á erindi við flestar greinar íþrótta. Á sunnudeginum verður áhersla lögð á blakíþróttina.

Verkefnið er því fyrir blakiðkendur á aldrinum 11 - 18 ára á laugardegi og sunnudegi. Fyrir þjálfara, íþróttakennara og áhugasama frá föstudagskvöldi til sunnudags.

 

Nánari upplýsingar eru á Facebook: Frá Grunni í Gull

Ítarlegri upplýsingar: Völsungs - www.volsungur.is