Fara á efnissvæði
05. ágúst 2017

Keppt í bogfimi í dag

Keppt verður í bogfimi í reiðhöllinni á Iðavöllum í dag, laugardag, á milli klukkan 16:00 til 18:00. Keppendur í bogfimi þurfa að mæta með sinn eigin boga.

Á morgun, sunnudaginn 6. ágúst, verður svo kennsla á milli klukkan 13:00 til 16:00 við Skattstofuna gegnt Egilsstaðastofu.

Öllum mótsgestum er velkomið að koma og prófa bogfimi í kennslunni.