Fara á efnissvæði
19. júlí 2018

Kökuskreytingar og fleiri spennandi greinar á Unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn

„Það er meiri fjölbreytni á Unglingalandsmótinu nú í Þorlákshöfn en nokkru sinni. Það veitir öllum þátttakendum tækifæri til að prófa fullt af spennandi greinum.  Á meðal nýjunganna, sem kynntar verða til leiks, eru greinar sem gera allri fjölskyldunni kleift að taka þátt og keppa saman,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ.

21. Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina 2.–5. ágúst nk. Að þessu sinni fer mótið fram spottakorn frá höfuðborginni, í Þorlákshöfn. Mótshaldarar eru Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK), Sveitarfélagið Ölfus og Ungmennafélag Íslands. 

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Mótið er því sannkölluð fjölskylduhátíð og er búist við ótrúlegum fjölda barna og ungmenna ásamt fjölskyldum þeirra á mótið. Ekki er skilyrði að vera skráður í ungmenna- eða íþróttafélag til þess að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ.

 

Margar nýjar greinar

Í ár er boðið upp á yfir 20 keppnisgreinar. Má þar t.d. nefna knattspyrnu, körfubolta og frjálsar íþróttir. Margar nýjungar eru líka kynntar til leiks í Þorlákshöfn. 

Á meðal nýrra greina nú er keppni í dorgveiði og sandkastalagerð. Keppni í kökuskreytingum er einnig á dagskránni. Þetta verður í annað sinn sem keppt er í kökuskreytingum á Unglingalandsmóti UMFÍ. Fyrst var keppt í greininni á Egilsstöðum í fyrra og var hún með vinsælustu greinunum.

„Við sáum það á Egilsstöðum að þátttakendur á Unglingalandsmótum vilja fjölbreytni og nýjungar. Við svörum að sjálfsögðu því kalli,“ bætir Ómar Bragi við og segir greinarnar flestar til þess fallnar að vinir og vinkonur geti búið til lið saman. Allir geta skráð sig til leiks

 

Fjölbreytt dagskrá og afþreying

Þétt dagskrá er alla mótsdagana og skemmtun á kvöldin þar sem margt af þekktasta tónlistarfólki landsins kemur fram. Þegar hafa boðað komu sína Jói Pé og Króli, Herra Hnetusmjör, Flóni og Huginn, Jón Jónsson og hljómsveitin Between Mountains, Young Karin, Míó Tríó, DJ Dóra Júlía og fleiri. Hin landsþekkta Lúðrasveit Þorlákshafnar kemur að sjálfsögðu fram á mótinu.

Skráningargjald á Unglingalandsmót UMFÍ er 7.000 krónur og geta allir sem vilja skráð sig til leiks. Greiða þarf gjaldið til að geta klárað skráningu. Aðrir mótsgestir greiða ekkert gjald en geta þó tekið þátt í fjölbreyttri afþreyingu og verkefnum sem boðið er upp á.

Skráning og greiðsla fer í gegnum greiðsluþjónustukerfið NORA.

 

Meiri upplýsingar um Unglingalandsmót UMFÍ á www.ulm.is og viðburðinum á Facebook.

Hér að neðan má sjá myndir frá ýmsum greinum á Unglingalandsmótinu í fyrra og myndir af tónlistarfólkinu sem kemur fram.