Kom astmaveikum vin til bjargar
Á ný liðnu Unglingalandmóti UMFÍ sem fram fór um verslunarmannahelgina kom Vaka Sif Tjörvadóttir, 11 ára stúlka frá Höfn í Hornafirði, astmaveikum vini sínum, Gabríeli Kristni Kristjánssyni, til bjargar í hjólreiðakeppni mótsins. Gabríel fékk astmakast í miðri keppni og var hjálparlaus í vegkantinum þegar Vöku bar að.
„Ég hélt fyrst að hann væri bara að fá sér að drekka en sá síðan að hann var ekki með neinn brúsa. Ég fór því að honum og spurði hvort það væri ekki allt í lagi. Hann sagði nei,“ lýsti Vaka. Drengnum tókst að stynja því upp að hann væri með astma og þá áttaði Vaka sig á að hann væri í miklum vandræðum.
„Hann hafði líklegast fengið astmakast þannig að ég fór út að veginum og reyndi að stoppa bíla til að biðja um hjálp. Tveir keyrðu framhjá en sá þriðji stoppaði. Það voru útlendingar, ekki enskumælandi en ég gat samt aðeins talað við þá, og svo heppilega vildi til að tveir þeirra voru með astma!“ segir Vaka. Þeir gátu gefið Gabríel púst svo að honum liði ögn betur.
Vaka hringdi á meðan í Neyðarlínuna og ferðamennirnir hlúðu að drengnum og svo dreif fleiri að. „Svo kom gæslan úr keppninni á staðinn og ég var enn þá að tala við 112. Ég var að reyna að útskýra hvar ég var og fá svör um hvað ég gæti gert og svona og það var mikið stress, þannig að á endanum lét ég gæslumanninn fá símann minn og hann talaði við læknana,“ segir Vaka, sem naut einnig liðsinnis Antons Kristbergs, drengs sem bar að á meðan á þessu stóð.
Vaka endaði á að hjóla aftur af stað og drengurinn fékk þá aðhlynningu sem hann þurfti. Á mótsslitum mótsins var Vaka heiðruð með gullmedalíu fyrir frammistöðuna. „Það var bara flott. Mér var alveg sama þótt ég myndi vinna keppnina, ég var hvort eð er með þeim öftustu,“ segir hún og hlær. Hún segir einnig frá því að allt sé í lagi með drenginn, hann þurfi bara að fá sér nýtt púst, því hann sé enn með pústið í láni frá útlendingunum sem komu honum til hjálpar.
UMFÍ hrósar og þakkar Vöku fyrir rétt viðbrögð.
Fréttin birtis fyrst á mbl.is þann 6.8.2019
Myndir frá hjólreiðakeppni ULM19.