Fara á efnissvæði
07. desember 2018

Kvitta undir Unglingalandsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði 2019

„Þetta verður flott mót, við erum full tilhlökkunar að halda það,“ segir Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar. Hún, Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður Ungmennasambandsins Úlfljótur (USÚ) hittust í þjónustumiðstöð UMFÍ síðdegis í dag og skrifuðu þar undir samstarfssamning vegna Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina 2019. Matthildur er jafnframt formaður framkvæmdanefndar Unglingalandsmóts UMFÍ. 

Unglingalandsmót UMFÍ hefur verið haldið frá árinu 1992 víða um land og er það orðið einn af stóru viðburðunum um verslunarmannahelgina hjá mörgum fjölskyldum. 

Þetta verður 22. Unglingalandsmót UMFÍ.

Á þessu ári var það haldið í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina. Þangað mættu meira en þúsund þátttakendur á aldrinum 11-18 ára og kepptu í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða þátttöku í ýmsum keppnisgreinum heldur þekkt tónlistarfólk tónleika öll kvöldin og boðið upp á allskonar afþreyingu af ýmsu tagi.

Unglingalandsmót UMFÍ var síðast haldið á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina árið 2013. Við undirskrift samstarfssamningsins í dag rifjuðu þau Haukur, Matthildur og Jóhanna Íris upp mótið og sérstaklega flotta frammistöðu tónlistarmannsins Páls Óskars við setningu þess, sem var eftirminnileg. 

Á myndinni hér að ofan eru þau Matthildur Haukur og Íris. Á neðri myndinni hefur bæst í hópinn Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri USÚ, sem jafnframt situr í varastjórn UMFÍ.

 

Meiri upplýsingar um Unglingalandsmót UMFÍ má finna á sérstakri heimasíðu mótsins: www.ulm.is