26. september 2017
Kynning á fimleikahátíð fyrir 50+ á Ítalíu
![](/media/jjfltvgn/15590d_37ba0b1ca38345d5b9995b56ad12ea1d-mv2_d_4992_3538_s_4_2.jpg?width=400&height=400&v=1d9a9c913686670 1x)
Miðvikudaginn 11. október næstkomandi verður kynningarfundur um fimleikahátíðina Golden Age. Fundurinn verður haldinn í húsnæði ÍSÍ Engjavegi 6 á 3. hæð klukkan 20:00.
Fimleikahátíðin Golden age er ætluð fólki 50 ára og eldra, þeim sama hópi og finnst gaman að hreyfa sig á Landsmóti UMFÍ 50+. Fimleikahátíðin fer fram í borginni Pesaro á Ítalíu dagana 16.-21. september 2018.
Hér er heimasíða hátíðarinnar: http://www.goldenage2018.com/