Kynntu næstu skref í stuðningi við íþróttafélög
„Það er svo mikilvægt að standa vörð um skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf með öllum ráðum, í því er fólginn lykillinn að lýðheilsu þjóðarinnar. Það hefur því verið aðdáunarvert að sjá breiðu samstöðuna fyrir aðgerðum stjórnvalda. Það sýnir að samstarf skilar mestum árangri, það er samfélaginu til góða,“ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
Frumvarp um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónufaraldursins var samþykkt á Alþingi á föstudag. Frumvarpið er hluti af geysilega umfangsmiklum stuðningi stjórnvalda við starf íþrótta- og æskulýðsfélaga sem raskast hefur verulega vegna afleiðinga sóttvarnaráðstafana COVID-19.
Þau Lilja D. Alfreðsdóttir, mennnta- og menningarmálaráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynntu aðgerðirnar á blaðamannafundi í dag ásamt Lárusi Blöndal, forseta ÍSÍ.
Fram kom í tilkynningu frá stjórnvöldum að stuðningur stjórnvalda á þessu sviði verður einn sá mesti á Norðurlöndunum.
Aðgerðirnar eru eftirfarandi:
Greiðslur vegna launakostnaðar íþróttafélaga
Til að tryggja að sem minnst röskun verði á íþróttastarfi til lengri tíma litið og félög geti viðhaldið ráðningasambandi við starfsfólk sitt verður veittur styrkur sem nemur launakostnaði þess, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, hafi hlutaðeigandi íþróttafélagi verið gert að fella tímabundið niður starfsemi vegna opinberra sóttvarnaráðstafana á tímabilinu frá 1. október 2020 til og með 30. júní 2021.
Vinnumálastofnun mun annast framkvæmd þessa og er ráðgert að opnað verði fyrir umsóknir í janúar næstkomandi og verður úrræðið kynnt nánar á fundi Vinnumálastofnunar með íþróttahreyfingunni milli jóla- og nýárs. Ráðgert er að heildargreiðslur vegna þessarar aðgerðar nemi um einum milljarði kr.
Viðbótarframlag til stuðnings íþróttafélögum
Veitt verður stuðningsframlag til íþróttafélaga, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, og verður sami háttur hafður á og við úthlutun styrkja til félaganna í vor. Framlag sem nemur 300 milljónum kr. verður skipt milli íþróttafélaga sem starfrækja skipulagt íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára. Tillit verður tekið til fjölgreinafélaga og getur úthlutun til einstaks íþróttafélags getur ekki orðið hærri en 3% af veltu félagsins samkvæmt staðfestum reikningsskilum 2019. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands gerir tillögu til ráðherra um úthlutunina. Stuðningur þessi kemur til viðbótar 450 milljónum kr. sem úthlutað var til rúmlega 200 íþrótta- og ungmennafélaga í sumar sem lið í fjárfestingarátaki stjórnvalda.
Styrkir til æskulýðsfélaga
Félagasamtök sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni munu geta sótt um styrki vegna tekjutaps félaga vegna afleiðinga COVID-19. Til úthlutunar verða alls 50 milljónir kr. og verður styrkurinn auglýstur á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins í janúar. Umsóknum um styrki skal vera hægt að sýna fram á veruleg neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Stuðningur þessi kemur til viðbótar 50 milljón kr. stuðningi sem auglýstur var til félaganna í júní síðastliðinn.
Iðkendur geti haldið áfram
Í tilkynningu er haft eftir Lilju að virkni og vellíðan fari saman. „Um allt land er blómlegt íþrótta- og æskulýðsstarf mikilvægur þáttur í hverju samfélagi. Um það starf viljum við standa vörð og tryggja að iðkendur á öllum aldri geti sem best sinnt sínum áhugamálum áfram,“ segir hún.
Ásmundur sagði COVID-19 faraldurinn hafa haft mikil áhrif á íþrótta- og æskulýðsstarf í landinu og sóttvarnaraðgerðir raskað starfsemi íþróttafélaga.
„Íþrótta- og æskulýðsstarf hefur jákvæð og þroskandi áhrif á börn og ungmenni og því er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um það góða starf. Með þessum umfangsmiklu aðgerðum tryggjum við að íþrótta- og æskulýðsstarf geti haldið áfram með þeim hætti sem við þekkjum þegar faraldrinum líkur. Þetta er skynsöm fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka fyrir samfélagið allt.“
Þá sagði Lárus Blöndal aðgerðir stjórnvalda gríðarlega mikilvægar. Þær stuðli að því að íþróttahreyfingin geti haldið úti sínu faglega starfi og sett aukinn kraft í starfsemina þegar öllum takmörkunum verður aflétt.
„Með þessu er líka búið að koma upp öryggisneti þannig að ef framhald verður á takmörkunum vegna farsóttarinnar þá er tryggt að íþróttahreyfingin getur staðið skil á launum og verktakagreiðslum, sem er undirstaða starfseminnar.”