Fara á efnissvæði
22. október 2019

Lét drauminn rætast og stofnaði fimleikafélag

Telma Ýr Snorradóttir stofnaði Fimleikafélag Vestfjarða á Patreksfirði fyrir ári síðan. Hún flutti nýverið til Tálknafjarðar og sinnir þjálfun líka í Bíldudal. Telma segir frábært að hafa tækifæri til að gera það sem maður nýtur að gera.

„Ef maður hefur drifkraftinn og löngunina til að leggja mikið á sig til að láta drauminn sinn rætast þá mæli ég með því að fólk stofni félag utan um íþróttina. Það er minna mál en ég óttaðist,“ segir fimleikaþjálfarinn Telma Ýr Snorradóttir. Hún flutti ásamt manni sínum og barni til Patreksfjarðar um mitt ár 2017. Telma hefur æft og keppt í fimleikum með Stjörnunni og Gerplu en þjálfar hjá Fylki og Aftureldingu og lá því beinast við að gera eitthvað sem tengdist fimleikum. 

Ekkert fimleikafélag var á sunnanverðum Vestfjörðum þegar Telma kom þangað. Hana langaði mikið til að halda áfram að gera það sem hún  nýtur og ákvað að bjóða upp á námskeið í fimleikum á Patreksfirði. Það vatt hins vegar fljótt upp á sig og voru iðkendurnir allt í einu orðnir níutíu talsins.

„Ég sá fljótt að eftirspurnin var langtum meiri en rúmaðist á einu námskeiði. Ég ákvað því að fara alla leið, stofnaði félagakennitölu, bjó til nafn og stofnaði Fimleikafélag Vestfjarða í september árið 2018,“ segir Telma. Í maí á þessu ári fékk félagið svo aðild að Héraðssambandinu Hrafna-Flóka og veitir það iðkendum rétt til að keppa á mótum þegar fram í sækir. En hvernig er að stofna nýtt félag? „Þetta var auðveldara en ég reiknaði með,“ svarar Telma. „Það tók mig um tvær vikur að liggja yfir nauðsynlegustu pappírum. En síðan fór ég í að sækja um styrki út um allt. Svörunin var mjög lítil. Gámaþjónustan var eina fyrirtækið sem gerði það og hefur nú styrkt okkur þrisvar. Við fengum líka niðurfellda leigu í íþróttahúsinu í bænum og það gerði okkur kleift að kaupa trampólín, hoppdýnur og ýmis áhöld. Íþróttahúsið keypti líka áhöld og nú er öll aðstaðan orðin mjög flott. Við erum líka mjög vel græjuð. Svo er þjálfarateymið gott. Marion Worthmann er kröftug viðbót við félagið, hún
er bara búin að færa allt til hins betra“, segir hún. 

Telma flutti nýverið norður á Tálknafjörð. Fimleikafélagið fór sömu leið og hefur dregið verulega úr starfsemi sinni á Patreksfirði. Æfingar eru nú þrisvar í viku á Tálknafirði og einu sinni á viku í Bíldudal. Iðkendum fækkaði að sama skapi og eru þeir um fimmtíu í dag á aldrinum frá 3–18 ára af báðum kynjum. „Þetta er orðið mjög flott hjá okkur, fjórir vinna hjá félaginu og margir iðkenda orðnir mjög efnilegir,“ segir Telma og mælir
með að fólk stofni íþróttafélög úti á landi. Það bæti mannlífið og gleðji fólk.

„Það er alltaf gaman þegar ný félög verða til. En svo er þetta rosalega gaman. Þetta var draumur sem mér datt aldrei í hug að myndi rætast. Þetta var því óvænt ánægja á Vestfjörðum!“

 

Viðtalið við Telmu Ýr birtist í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Blaðið er að lesa í heild sinni hér.