Fara á efnissvæði
28. júní 2019

Lið Sparisjóðs Austfjarða fyrst til að falla úr keppni - ætla að snúa aftur

Lið Sparisjóðs Austurfjarða náði þeim vafasama áfanga að verða fyrsta liðið til að falla úr leik á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið er í Neskaupstað um helgina. Liðið er ekki af baki dottið og sér fram á glæsta sigra síðar í boccia.

„Ég vissi fyrst af því fyrir sex dögum að það væri til íþróttagrein sem heitir boccia,“ segir Guðjón Bj. Magnússon, einn liðsmanna, í samtali við Austurfrétt.

Fyrirliði liðsins er Magnús Jóhannsson en upphaf liðsins má rekja til þess að hann fór á dómaranámskeið í greininni sem haldið var í aðdraganda mótsins. „Hann fór á námskeiðið en kom þaðan með þá hugmynd að við settum saman lið.“

Æfingarnar fóru fram í garðinum hjá Magnúsi en þeir Guðjón hafa búið hlið við hlið í Neskaupstað i áratugi. Í liðinu voru einnig Jónína Sigurðardóttir, kona Magnúsar og Stefán P. Pétursson, tengdasonur Guðjóns.

Liðið náði æfingaleik við Ísfirðinga sem æfa reglulega boccia og gekk nokkuð vel. Á brattan var hins vegar að sækja þegar alvaran tók við í morgun þar sem liðið tapaði öllum leikjum sínum í riðlakeppninni og féll þar með úr leik. „Við minnum svolítið á bobsleðaliðið frá Jamaíku sem fór á Ólympíuleikana,“ segir Guðjón.

Þau eru hins vegar ekki af baki dottin. „Þetta var mjög gaman og við hefðum alveg verið til í að spila fleiri leiki. Nú verðum við bara að æfa og mæta á næsta mót sem verður í Borgarnesi að ári,“ segir Guðjón.