Fara á efnissvæði
04. ágúst 2017

Mótsgestir kæla sig í Eyvindará

Það er gott að geta kælt sig niður. Það kunna þátttakendur á Unglingalandsmóti UMFÍ. Þegar nokkrir keppendur luku leikjum sínum í knattspyrnu og körfuknattleik í dag fóru þau í Selskóg og kældu sig niður með því að hoppa í Eyvindará.

Fjöldi fólks var við ánna síðdegis í dag og léku sér að því að hoppa og kæla sig niður.

Fleiri myndir frá Unglingalandsmóti UMFÍ má sjá á Flickr-síðu UMFÍ. Þar má sjá margar myndir frá mótinu og eru þær færðar inn hægt og bítandi.

 

Myndasíða UMFÍ