Fara á efnissvæði
09. apríl 2021

Mundu eftir að senda inn umsókn í Umhverfissjóð UMFÍ

Við minnum á að opið er fyrir umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ til 15. apríl næstkomandi. 

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að styrkþegi sé félagi eða aðildarfélag UMFÍ og að verkefnið sé umhverfisverkefni.

Umhverfissjóður UMFÍ er minningarsjóður Pálma Gíslasonar, fyrrverandi formanns UMFÍ. Fjölskylda hans stofnaði sjóðinn ásamt ungmennafélagshreyfingunni og öðrum velunnurum.

Sjóðurinn styrkir ýmis konar umhverfisverkefni. Þar á meðal er verkefni Golfklúbbs Akureyrar sem snýr að merkingu á göngu- og hjólastígum Jaðarsvallar, gerð skíðagöngubrauta í Vaglaskógi á vegum Ungmennafélagsins Bjarma, gróðursetning í Gufunesi á vegum Frísbígolffélags Reykjavíkur og svo má lengi telja.  

Gerið nú rauðan hring utan um 15. apríl í dagatalinu og skellið í umsókn fyrir umhverfisverkefnið.

Úthlutanir verða kynntar í maí.

Umsókn þarf að skila með rafrænum hætti og er umsóknareyðublað á heimasíðu UMFÍ undir liðnum styrkir.

Smelltu hér til að sækja um