Fara á efnissvæði
04. febrúar 2020

Námskeið í barnavernd

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum

Á námskeiðinu er m.a farið yfir:

 

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Næsta námskeið fyrir þau félagasamtök sem saman mynda Æskulýðsvettvanginn fer fram þann 6. febrúar 2020. Námskeiðið fer fram í félagsheimili KFUM og KFUK að Hátúni 36, Keflavík. Námskeiðið hefst kl. 17:00 og stendur til kl. 20:00. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skráning fer fram á netfangið aev@aev.is eigi síðar en 5. febrúar n.k. Við skráningu þarf að koma fram nafn þátttaka, kennitala og félagasamtök.