Fara á efnissvæði
26. október 2021

Netnámskeið í barnavernd aðgengilegt á ensku

Netnámskeið í barnavernd fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsstarfi er nú aðgengilegt á ensku. Siðareglur Æskulýðsvettvangsins eru það sömuleiðis.

Námskeiðið er ókeypis og hvetjum við sem flesta til þess að nýta sér það og þá þekkingu sem þar er að finna í sínu starfi og stuðla með því að vönduðu, uppbyggilegu og öruggu starfi með börnum og ungmennum.

Mikilvægt er að allir sem starfa með börnum og ungmennum séu meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Markmiðið með netnámskeiði í barnavernd er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og mögulegum afleiðingunum af því. Tilgangurinn er að reyna að koma í veg fyrir að slíkt komi upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi og gera börnum og ungmennum auðveldara með að fá úrlausn slíkra mála þegar þau koma upp.

Æskulýðsvettvangurinn hefur haldið netnámskeiði í barnavernd úti frá árinu 2019. Námskeiðið er þróað ásamt sérfræðingum í málaflokknum.  Á þeim tveimur árum sem námskeiðið hefur verið aðgengilegt hefur fjöldi fólks, eða nokkur hundruð einstaklingar á ári, tekið námskeiðið sem hefur verið tekið upp víða sem hluti af námi og þjálfun og skylda í starfi.

 

Námskeiðið má nálgast hér á ensku: Netnámskeið í barnavernd á ensku

Námskeið má nálgast hér á íslenskuNámskeiðið á íslensku er hér

Í tilefni af þessu er rétt að minna á að siðareglur Æskulýðsvettvangsins eru einnig aðgengilegar á ensku