Fara á efnissvæði
21. apríl 2023

Norðmenn fræðast um íþróttafélög og frístundastyrki

Tæpur 30 manna hópur Norðmanna sem öll vinna við íþróttir í ólíkum sveitarfélögum Rogaland fylkis heimsótti Ísland í vikunni til að fræðast um íþróttastarfið á Íslandi, um frístundastyrki, skipulag og fjármögnun íþróttafélaga , tengsl skóla og frístundastarfs og margt fleira.

Rogaland er í suðvesturhluta Noregs og eitt af ellefu fylkjum landsins. Íbúar Rogalands eru meira en hálf milljón.

 

Fóru víða

Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, voru með fyrirlestra fyrir hópinn um uppbyggingu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og um sérkenni barna-og unglingastarfs hér á landi. Að auki voru þær  hópnum innan handar þá tvo daga sem heimsókn þeirra stóð yfir. Hópurinn fór í heimsókn í Laugardalshöll þar sem Birgir forstöðumaður hallarinnar tók á móti hópnum. Þaðan var ferðinni heitið til Ármanns þar sem Jón Þór Ólason framkvæmdastjóri tók á móti hópnum, sagði frá félaginu og sýndi mannvirkin. Næsti viðkomustaður var Laugardalsvöllur, þar sem Kristinn V. Jóhannsson tók á móti hópnum og gekk með þau um mannvirkið og að lokum skoðaði hópurinn Laugardalslaug þar sem Árni Jónsson hélt góða kynningu.

 

 

Jóhanna Garðarsdóttir hjá Reykjavíkurborg fór yfir frístundakort borgarinnar, nýtingu þeirra, áskoranir og tækifæri.

Hópurinn fór líka í skoðunarferð um ný og glæsileg íþróttamannvirki Fram í Úlfarsárdal og fékk upplýsingar um þá miklu uppbyggingu sem þar hefur farið fram, en þar tók íþróttastjórinn Þór Björnsson á móti hópnum.

Að því loknu lá leið Norðmannanna, Auðar og Ragnhildar austur fyrir fjall að skoða Hellisheiðarvirkjun og áfram til Selfoss þar sem Engilbert Olgeirsson framkvæmdastjóri HSK, Helgi S. Haraldsson, formaður Umf. Selfoss, og Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar, tóku á móti hópnum og sögðu frá starfseminni og sýndu þeim íþróttamannvirkin á vallarsvæðinu.

Frá Selfossi lá leiðin til Þingvalla þar sem Almannagjá var gengin. Ferðin endaði svo í böðunum í Hvammsvík. Norðmennirnir voru þakklátir fyrir mjög góðar móttökur alls staðar sem þeir komu.