Fara á efnissvæði
09. ágúst 2019

Nú er hægt að hlusta!

Fyrsti hlaðvarpsþáttur verkefnisins Sýnum karakter hefur nú litið dagsins ljós. Sýnum karakter er verkefni á vegum ÍSÍ og UMFÍ. Í hlaðvarpi Sýnum karakter má hlusta á samtöl við áhugavert fólk í íþróttahreyfingunni á Íslandi. Fyrsti viðmælandi hlaðvarpsins er Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness.

Hildur Karen er fædd og uppalin í Bolungavík. Hún segir það algjör forréttindi að hafa fengið að alast upp í Bolungavík á þessum tíma: „Það var uppgangur, lífið snérist um íþróttir, frjálsar og fótbolti á sumrin, skíði og sund á veturna. Pabbi formaður í sundinu og mamma þjálfari í sundi. Það var draumur að alast upp í svona litlu samfélagi, svo mikil nánd, íþróttirnar nr. 1, 2 og 3“. Þetta uppeldi mótaði hana mikið sem manneskju og var hún því ákveðin að flytja í svipað bæjarfélag eftir nám í Danmörku. Akranes varð fyrir valinu og nú er hún framkvæmdastjóri ÍA.

Nálgast má hlaðvarp Sýnum karakter hér.

Verkefnið Sýnum karakter er átaksverkefni um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni. Kynntu þér verkefnið með því að smella hér