Fara á efnissvæði
02. febrúar 2018

Nú er hægt að sækja um styrki í Umhverfissjóð UMFÍ

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ. Sjóðurinn styrkir umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Umsóknir skulu berast á þar til gerðum umsóknareyðublöðum fyrir 15. apríl ár hvert. Tilkynnt er um styrkveitingar fyrir 15. maí sama ár. Skilyrði fyrir styrkjum er að styrkþegi sé félagi/félag í UMFÍ og verkefnið sé umhverfisverkefni. 

Á síðasta ári var úthlutað úr sjóðnum 950.000 krónum til átta verkefna. Mest voru það verkefni tengd gróðursetningu og vegna skjólbelta við íþróttavelli.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Við úthlutun úr sjóðnum er horft til verkefna sem tengjast yngra fólki og verkefna sem stuðla að auknum tengslum við náttúru landsins.

 

Minningarsjóður Pálma Gíslasonar

Umhverfissjóður UMFÍ er minningarsjóður Pálma Gíslasonar, formanns UMFÍ á árunum 1973-1993. Pálmi lést af slysförum í júlí árið 2001, þá nýorðinn 63 ára.

Stofnendur sjóðsins eru fjölskylda Pálma ásamt ungmennafélagshreyfingunni og öðrum velunnurum.

Fyrstu styrkirnir úr sjóðnum voru veittir við hátíðlega athöfn í júlí árið 2008 og voru þeir afhentir í Heydölum í Mjóafirði en staðurinn er í eigu fjölskyldu Pálma. 

 

Meira um Umhverfissjóð UMFÍ

Umsókn um styrk