Fara á efnissvæði
03. febrúar 2020

Nýtt íþróttahús tekið í notkun á 85 ára afmæli UMFG

„Afmælið gekk mjög vel og nýja íþróttahúsið bætir alla aðstöðu til muna,“ segir Bjarni Már Svavarsson, formaður Ungmennafélags Grindavíkur (UMFG). Félagið var stofnað árið 1935 og fagnaði 85 ára afmæli í gær.

Á sama tíma var ný viðbygging við íþróttamiðstöðina í Grindavík tekin formlega í notkun. Viðbyggingin er rúmlega 2000 fermetrar að stærð. Þar er stór íþróttasalur, annar minni, aðstaða fyrir júdó, fjórir búningsklefar, áhaldageymsla, afgreiðslurými og fleira.

Bjarni segir nýtt körfuboltahús í byggingunni vafalítið með þeim flottari á landinu.

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, kom í afmælið og flutti þar stutt ávarp í tilefni dagsins eins og aðrir fulltrúar Grindavíkurbæjar. Jarðhræringar við Þorbjörn sem truflað hafa bæjarbúa voru afmælisgestum ofarlega í huga og sagði Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, í erindi sínu gleði og sorg vera systur. Auður Inga afhenti Bjarna jafnframt áritaðan skjöld frá UMFÍ í tilefni dagsins.

Öllum bæjarbúum var boðið að skoða nýja húsið og voru um 200 gestir í veislunni, að sögn Bjarna.

Hann segir nýja húsið breyta miklu í Grindavík.

„Æfingar hér hafa verið langt fram á kvöld enda íþróttahúsið fullt. En nú verður hægt að ljúka æfingum miklu fyrr og meira að segja lausir tímar, sem aðrir geta nýtt sér,“ segir hann.

 

Hér má sjá myndir úr afmælinu sem Kristín María hjá Grindavíkurbæ tók auk myndar úr körfuboltahúsinu nýja.