Fara á efnissvæði
29. ágúst 2018

Ókeypis námskeið fyrir fólk í stjórnum félaga

Stjórnarfólki sambandsaðila UMFÍ gefst kostur á að sækja námskeið í félagastjórnun sem haldið verður á Akureyri föstudaginn 7. september. Námskeiðið er ókeypis og haldið á ráðstefnunni Lýsu, sem áður hét Fundur fólksins. Ráðstefnan verður haldin í menningarhúsinu Hofi á Akureyri dagana 7. – 8. september.

Það eru Almannaheill sem standa fyrir og skipuleggja Lýsu en UMFÍ er aðili að Almannaheillum. Samtökin hafa fengið til liðs við sig Hildi T. Flóvenz, ráðgjafa hjá KPMG, til að hanna námskeiðið sem er sérstaklega ætlað fyrir stórnarfólk í almannaheillasamtökum. Markmiðið er að stjórnarfólk átti sig á hlutverki sínu og ábyrgð svo stýra megi félögum með faglegum hætti. 

Yfirskrift námskeiðsins er hlutverk og ábyrgð stjórna félagasamtaka og er það haldið föstudagsmorguninn 7. september á milli klukkan 10:00 – 11:45.

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi atriði:

Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að:

Hámarksfjöldi eru 25 manns, fyrstur kemur fyrstur fær.

Skráningar er krafist á námskeiðið. 

 

Meiri upplýsingar um ráðstefnuna

Helstu upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vefsíðunni: http://www.lysa.is

Viðburður námskeiðsins á Facebook: Námskeið fyrir stjórnir félaga

Mikilvægt er að skrá sig á námskeiðið. Það er hægt að gera hér: Skráning á námskeiðið