Fara á efnissvæði
17. maí 2019

Opið fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50+

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri sem haldið verður í Neskaupstað dagana 28.-30. júní.

Mótið er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í eitthvert íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.

Þátttökugjald er 4.900 krónur og er fyrir það hægt að skrá sig í eins margar greinar og viðkomandi vill taka þátt í.

UMFÍ heldur mótið með Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands (UÍA) og sveitarfélaginu Fjarðabyggð.

Keppnisgreinar á mótinu eru: Boccía, bridds, frjálsar íþróttir, frisbígolf, garðahlaup, golf, línudans, lomber, pílukast, pútt ringó, skák, strandblak og sund. Að sjálfsögðu verður líka keppt í klassísku stígvélakasti og pönnukökubakstri, sem hefur notið gríðarlegra vinsælda.

Fólk undir fimmtugu þarf ekki að standa hjá og horfa því opið er á ýmsa viðburði fyrir fólk á þeim aldri. Garðahlaup er einn slíkra viðburða.

Hægt er að smella hér og skrá sig

 

Ítarlega upplýsingar má finna á

Heimasíða Landsmóts UMFÍ 50+

Viðburðasíða á Facebook