16. apríl 2025
Opið fyrir umsóknir í Hvatasjóð

Hægt að sækja um í annað sinn í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar á árinu.
Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar geta eftirtaldir aðilar innan ÍSÍ og UMFÍ sótt um: 1) íþróttahéruð 2) íþróttafélög og/eða deildir þeirra 3) sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög og/eða deildir félaga.
Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis 20. maí næstkomandi.
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis.