Fara á efnissvæði
02. janúar 2025

Opið fyrir umsóknir í Hvatasjóðinn

Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni fyrir verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:

  • Auka útbreiðslu og  þátttöku barna í íþróttum
  • Efla þátttöku barna með fötlun
  • Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum
  • Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Frestur til að skila inn umsóknum er til mánudagsins 27. janúar klukkan 16:00.

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og  Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.

 

Senda umsókn í sjóðinn hér

 

Allar upplýsingar um sjóðinn hér:

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar