Fara á efnissvæði
02. október 2023

Opið fyrir umsóknir í þrjá sjóði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ og verður hægt að sækja í hann til 1. nóvember 2023. Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til umsóknar eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Meira um Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ

 

Íþróttasjóður

Við minnum á að opið er í Íþróttasjóði til morgundagsins, 3. október klukkan 15:00. Styrkir úr Íþróttasjóði eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, að þessu sinni er við úthlutun horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að inngildingu í íþróttum. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Meira um Íþróttasjóð

 

Æskulýðssjóður

Opið er fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð til 16. október næstkomandi klukkan 15:00. Sjóðurinn er hugsaður fyrir verkefni barna og ungmenna á aldrinum 6 – 25 ára og til þess að auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða upp á fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Meira um Æskulýðssjóð