Fara á efnissvæði
02. nóvember 2018

Opna íþróttahallirnar fyrir alla

Knattspyrna hefur miðast við karla frá upphafi og fara mestu fjármunirnir til karladeilda. Unnið er meðvitað að því innan sænska íþróttafélagsins IF Brommapojkarna að opna félagið fyrir alla iðkendur og bjóða upp á æfingar fyrir bæði kynin. Þetta segir Charlotte Ovefelt, jafnréttisráðgjafa sænska íþróttafélagsins IF Brommapojkarna.

Í samræmi við breytta stefnu opnar félagið íþróttahús sín og hallir fyrir yngri kynslóðir iðkenda þegar þörfin er mest, á kvöldin og um helgar. Eins er farið að bjóða upp á æfingar fyrir stúlkur sem hafa aldrei áður verið í skipulögðu íþróttastarfi. Ungmenni fá jafnvel að vinna á viðburðum IF Brommapojkarna.

Ovefelt hélt erindi um IF Brommapojkarna, staðalímyndi og viðhorf í félaginu á ráðstefnunni „Jákvæð íþróttamenning“ sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í dag. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) héldu ráðstefnuna í samvinnu við Háskólann í Reykjavík undir merkjum verkefnisins Sýnum karakter.

Pakkfullt var á ráðstefnuna og var uppselt fyrir nokkrum dögum. Ráðstefnugestir komu víða að og var fjöldi gesta frá Neskaupstað, Ísafirði, úr Dölunum, Keflavík og víðar sem gerði sér ferð til að fræðast og ræða saman um það hvernig hægt er að gera gott starf enn betra.

 

Hættum að tala um klúður

Á meðal annarra sem héldu erindi á ráðstefnunni var dr. Viðar Halldórsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. Viðar sagði mikilvægt að breyta orðræðunni í íþróttum. „Við þurfum að nota aðra orðræðu og breyta tungumálinu til að byggja upp jákvætt og andrúmsloft,“ sagði hann og mælti með því að hætt verði að nota orð á borð við klúður og mistök og tala frekar um tilraunir.

 

Byggjum um jákvæð menningu í íþróttum

Áherslan á ráðstefnunni voru félagslegar og sálrænar hliðar íþrótta og rætt um leiðir til að byggja upp jákvæða menningu í íþróttastarfinu. Fyrirlesararnir voru sjö talsins. Það voru þau Markús Máni Michaelsson Maute, Ása Inga Þorsteinsdóttir hjá Stjörnunni, Karl Ágúst Hannibalsson hjá FSu og Jóhannes Guðlaugsson hjá ÍR.

Síðastur á stokk steig dr. Chris Harwood, íþróttasálfræðingur og prófessor við Loughborough háskóla í Englandi. Harwood mun auk þess stýra vinnustofu alla helgina með dr. Karl Steptoe, íþróttasálfræðingi sem m.a. vinnur fyrir enska úrvalsdeildarliðið Leicester City. Vinnustofan er hugsuð fyrir yfirþjálfara eða reynslumikla þjálfara sem eru í því að móta starf deildarinnar eða félagsins, óháð íþróttagrein.

 

Upptaka frá ráðstefnunni og erindunum verður aðgengileg á vefsíðu Sýnum karakter. Sjá meira á www.synumkarakter.is

Myndir frá ráðstefnunni