Fara á efnissvæði
10. febrúar 2025

Ráðherra gerir samning við ÍF til eins árs

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samning um áframhaldandi stuðning stjórnvalda við Íþróttasamband fatlaðra ásamt Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra. Markmið samningsins er að auka þátttöku fatlaðra í íþróttastarfi. Samningurinn gildir til eins árs.

Fram kemur á vefsvæði mennta- og barnamálaráðuneytis að sérstök áhersla hafi verið lögð á stuðning við íþróttaiðkun fatlaðra á undanförnum árum. Megi þar nefna verkefnið Allir með, sem miðar að því að fjölga tækifærum og auka aðgengi fatlaðra að íþróttum. Verkefnið er samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra, ÍSÍ og UMFÍ og er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu, félags- og vinnumálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu.

Sérstök áhersla er jafnframt á afreksstarf fyrir fatlað íþróttafólk í samræmi við tillögur starfshóps mennta- og barnamálaráðherra sem birtar voru í apríl á síðasta ári.

Íþróttasamband fatlaðra samræmir starf allra íþróttafélaga sem bjóða upp á starf fyrir einstaklinga með fötlun. Með samningnum er sambandinu falið að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og hollri hreyfingu, veita faglegan stuðning og ráðgjöf til að skapa sem hagstæðustu skilyrði til íþróttaiðkunar og gefa sem flestum kost á að taka þátt, vinna að útbreiðslu, fræðslu og forvarnarmálum, undirbúa og tryggja þátttöku Íslands á Ólympíumóti fatlaðra og öðrum tengdum verkefnum.

 

Vefsvæði Stjórnarráðsins