Fara á efnissvæði
18. október 2023

Ráðstefna um nýja stefnu í afreksíþróttum

Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga, boðar til ráðstefnunnar Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn 20. nóvember kl. 9-16 í Gullteig á Grand Hótel Reykjavík og í streymi. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. 

Fulltrúar íþróttahreyfingarinnar og aðrir gestir ráðstefnunnar munu koma að mótun tillagnanna.
„Við höfum leitt saman færa og fjölbreytta sérfræðinga víða að í þessa vinnu sem náð hafa miklum árangri í íþróttum, við þjálfun afreksíþróttafólks og við rannsóknir,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. 

„Við viljum nýta sérþekkinguna innan íþróttahreyfingarinnar og skólasamfélagsins til að skapa umgjörð sem er jafn góð ef ekki betri en hjá keppinautum okkar.“

Starfshópur á vegum mennta- og barnamálaráðherra hefur skoðað stöðu og réttindi afreksíþróttafólks og vinnur hann nú að því að svara og verða til umræðu á ráðstefnunni. 

Vésteinn Hafsteinsson, afreksíþróttamaður, -þjálfari, nýr afreksstjóri ÍSÍ og sérfræðingur hjá ráðuneytinu, leiðir starfshópinn.

 

Hópurinn hefur spurt m. a. eftirfarandi spurninga:


Hvernig skörum við fram úr?
Hvert er besta fyrirkomulagið?
Hvað getum við lært af öðrum?
Hvernig styðjum við best við afreksíþróttafólk?

 

Á ráðstefnunni verða kynnt áform um stóreflingu afreksíþróttastarfs hérlendis með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk. Fjallað verður um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. 

Þá mun þjóðþekkt afreksíþróttafólk koma sínum áherslum á framfæri og verður aðkoma sveitarfélaga og atvinnulífsins tekin fyrir. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Opið er fyrir skráningar til og með 16. nóvember.

Skráning á ráðstefnu

Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um árangur og afreksstarf til að mæta.