Fara á efnissvæði
22. júní 2023

Rástímar komnir í golfi

Búið er að birta rástíma fyrir alla þá sem hafa skráð sig í golf á Landsmóti UMFÍ 50+. Þátttakendur í golfi eiga að hafa fengið tölvupóst þar um en geta líka skoðað rástíma sína á golfbox.

Þeir þátttakendur sem ekki hafa fengið rástíma úthlutað en viss um að þau eigi að vera skráð í golf þurfa að hafa samband við Hólmgeir Þorsteinsson, sérgreinastjóra  í golfi í síma 778-2620.

Golf er á dagskrá mótsins laugardaginn 24. júní á milli klukkan 08:30 - 15:00.

 

Allar upplýsingar um Landsmót UMFÍ 50+ eru á umfi.is