Fara á efnissvæði
23. mars 2020

Ríkið styrkir íþróttahreyfinguna

„Það er mikilvægt að þessir fjármunir komist í umferð sem allra fyrst, svo afkoma fólks og félaga sem starfa á þessum sviðum verði betur tryggð,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Ráðuneytið mun verja viðbótar 750 milljónum króna í menningarverkefni og stuðning við starfsemi íþróttahreyfingarinnar á næstu vikum til að sporna við efnahagsáhrifum COVID-19 faraldursins. Þá verður 400 milljónum króna varið í rannsóknartengd verkefni. Alls er því um ræða 1.150 milljónir króna, sem koma til viðbótar við fjárveitingar í fjárlögum ársins 2020.

Haft er eftir Lilju á vefsíðu ráðuneytisins, að ætlunin sé að skapa störf fyrir fólk sem hafi orðið fyrir miklu tekjutapi vegna aðstæðna, og í leiðinni menningarverðmæti og þekkingu sem nýtist inn í framtíðina.

„Þetta er veruleg innspýting í þessa mikilvægu starfsemi og aðgerðirnar eru umfangsmeiri en stjórnvöld í Noregi og Svíþjóð hafa gripið til af sama tilefni. Þetta er stór áfangi í þeirri baráttu að koma samfélaginu aftur á réttan kjöl, eftir skaðann sem COVID-19 hefur valdið. Við munum gera það sem þarf,“ segir hún.